Labbakútar
31.12.2006 21:41:25 / elísabet

síðasta færsla ársins

Áramótadagur er senn genginn í garð.. dagurinn minn var svosem ágætur fyrir utan mest allt:p hehe.. ég mætti í vinnuna rétt fyrir 9 eftir að hafa sofið í heila 3 klst og kannski sona korter í viðbót.. ég var semsagt að vinna frá rétt fyrir 9 til rétt eftir 16 þetta voru semsagt rúmir 7 klukkutímar.. góður árangur ef þú spyrð mig:p ég  fékk að leika með úldna grænmetið og baka brauð og meira segja fékk ég líka að taka kerrur og afgreiða á kassa og já ég var líka í grænmetinu og að leiðbeina fólki.. ég semsagt gerði sittlítið af eiginlega öllu:p

Þegar ég fór loksins úr vinnunni  þá var án gríns klaki yfir öllum bílnum.. hurðarnar voru frosnar lokaðar og eitthvað rugl.. skondið það..  mamma eldaði jólagjöfina mína síðan, hún var ágæt.. ég fékk sko Nóatúnshamborgarahrygg frá Krónunni..  en já

Núna er Austin Power á skjá1 en ég ætla ekkert að fara neitt nánar útí það nema bara að segja að ég sé að horfa á það..

Flugeldasýningin ereftir smá . og brennan og allt það..  sprengja sprengja já! Gaman gaman já!

 

 



  -GLEÐILEGT NÝTT ÁR- (ekki lesa þetta fyrr en á miðnætti:P )

 

 



Mér hlakkar til á eftir. Ég ætla að sprengja með Hönnu og Unni  og læti.. ógó gaman.. getum rendar ekki farið á sleða vegna snjóleysis en ætli við lifum það ekki af..

Ég nenni ekki að skrifa meira í bili en ég blogga kannski nýtt einhvertímann á næsta ári;)

Hehe.. húmor:p  anyways.. later dúds

 

 



Elísabet kveður árið 2006, -OVER AND OUT-


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 04:58:27 / elísabet

I wanna be a part of B.A. Buenos Aires, Big Apple

Dagurinn sem var að klárast var þriðjudagurinn 26. desember 2006... Jólin eru búin..

Ég komst nú alveg í sona semi jólaskap eftir bloggið mitt seinasta.. en þá var ég hvað verst haldin af jólahatri. Ég er búin að fara í ógrinni af matarboðum og mér þætti ekki ótrúlegt ef ég hefði bætt á mig einhverjum kílóum, hehe.. .. en hvað eru nokkur kíló sona um jólin....

 

 



Ég var að koma heim núna rétt í þessu, ég var í matarboði hjá vinkonu mömmu minnar.. það var svosem alveg ágætt.. ég fékk að keyra heim þar sem báðir foreldrar mínir voru sauðdrukknir.. nei djók. Þau voru samt bæði búin að drekka smá.. þannig ég hlaut þann heiður að keyra heimJ

 

 



ég fékk fullt af jólagjöfum eins og vanalega.. fæ sko alltaf mest:p systur mínar eru alltaf geðveikt fúlar yfir því.. hehe.. en það er bara gaman að því..

þetta fékk ég í jólagjöf

ipod nano

ullarpeys

bratz handklæði

prinsessu vekjaraklukku

plástra í stíl við vekjaraklukkuna

kórónu og sprota

pappírskórónu

rauða lakkskó

napoleon dynamite myndina

powerpuff girls á dvd

4 aðrar dvd myndir með litlu systrum mínum

2 bolla

hálsmen

2 sokkapör

Einn sebrabangsa

Nærbuxur

Marsbita í jólasveini

Og svo auðvitað kerti og spil J

Svo á ég eftir að fá 3 jólagjafir:P hehe.. jeij

 

 



Á morgun hef ég heilan dag til að gera ekkert, nákvæmlega ekkert.. eða sona næstum því..  er held ég að fara að gera karamellur með Unni.. en annars ekki neitt..:D how nice?

Ég ætla sko feitast að sofa út .. amma mín kom í hádegismat í morgun.. þannig ég fékk ekki að sofa út þá.. L

Ég og Hanna ætlum í kringluna á fimmtudaginn að skipta náttbuxunum mínum og sloppnum hennar  sem voru í vitlausari stærð og svo er ég að fara í “sovét” seinnipartinn.. verður sona ds. WYXUS!! Náttfatajólasovét.. voða gaman.. vona það allavega.. ætlum að borða kökur og fínerí og svo er auðvitað náttfataskilda.. :p hehe..

Svo kemur föstudagurinn 29. des.. hann er frídagur enn sem komið er allavega.:p alltaf gaman að hafa nokkra frídaga..

Ég fer svo að vinna um helgina fyrir vinkonu mína.. veit ekki alveg hvenar ég byrja eða klára á laugardaginn en er að vinna til 3 eða 4 á gamlársdag.. það er svosem alltílagi..

Gamlársdagur Á að verða geðveikt skemmtilegur:D ég borða bara heima eins og vanalega og verð með familíunni þar til flugeldasýningin á reykjalundi er búin þá fer ég til Hönnu og Unnur ætlar líka að koma.. við ætlum  að sprengja fullt :D jeij.. og svo bara hafa það gaman J

 

 



--vá ég er alveg í spreng núna sko.. verð eiginlega að skreppa á klósettið, brb—

 

 



Oki.. ég er búin að hrissta úr skinnsokknum eða þú veist.. skvetta úr skvísunni eða hvað sem maður nú segir.. allavega er ég búin að pissa:p

Ég er með kveikt á sjónvarpinu.. skjá1 ef ég vill vera nákvæm.. einhver mynd sem ég man ekki hvað heitir er í sjónvarpinu.. ég er oft búin að sjá auglýsinguna samt.. ég á að vita hvað myndin heitir.. .. þetta er þarna myndin með eldspúandi drekunum og köllunum sem eru að drepa þá .. hún heitir eitthvað sem inniheldur “fire” man bara ekki hvað var meira..

 

 



Vá mér langar geðveikt að fara að gera eitthvað.. fara út eða eitthvað.. ég á smá “hunang” inní skáp.. ætli ég geymi það samt ekki aðeins lengur.. mér langar samt líka geðveikt að horfa á Napoleon Dynamite.. ég vill bara ekki gera það ein... afhverju er enginn hjá mér??

 

 



Mér langar að einhver sé hjá mér.. einhver sem er skemmtileg/ur.. það er eina skilyrðið sem ég set... ég nenni nefninlega ekki að hanga með einhverri leiðinlegri gellu eða leiðinlegum gaur.. þðað er lítið gaman..

Annars langar mig líka alveg að gera eitthvað annað en að horfa á imbann.. J allar hugmyndir verða teknar til skoðunar:P..

 

 



Það er samt á mörkunum að ég nenni að skrifa meira.. er voða löt eitthvað..  er að spá í að segja þetta bara gott í bili og skrifa meira seinna..

Ég vil samt taka það framm að ég hata jólin ekki lengur.. ég hata bara systur mínar og á jólunum þarf ég að eyða meiri tíma með þeim.. annars voru jólin ágæt í flesta staði..

 

 



Mér langar samt geðveikt að flytja að heiman... það væri svo ýktað gaman.. er meira segja búin að vera að spá í að fá að flytja til Örnu..allavega í smá tíma.. væri feitast gaman sko.. flepp í heimi að prufa að búa í hafnafirði, brandarabænum:p

 

 



En já ég ætlaði að hætta að tala um hluti sem enginn hefur áhuga á.... adios..

 

 



Ps. Þetta er blogg númer 2 sem er skrifað í word :p skemmtileg staðreynd.. alltaf gaman að vita sona hlutiJ

 

 



-OVER AND OUT-


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:32:16 / elísabet

jóladrasl

hæjhæj .. Elísabet anti-jólabarn hérna.. mér langar bara að segja ykkur frá því að ég hata jólin og ætla ekki að halda uppá þau á næsta ári nema aðstæður breytist mun mikið.

í dag er 24. desember 2006, aðfangadagur, en fyrir mér gæti allt eins verið september.. jólahvað spyr ég bara?

horfið útum gluggann.. án gríns, geriði það. það er rigning (allavega þegar ég skrifa þetta) það er ekki snjórl, ekki einu sinni smá.. ég meina HALLÓ ég ÞARF!!! snjó.. jólin eru ekkert komin hjá mér.. ég fór áðan að keyra út nokkra jólapakka og mér leið bara eins og ég væri í pakkaleik.. bara dreyfa pökkum voða gaman..

nenni ekki meir

OVER AND OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:49:50 / elísabet

reglubrot en what ever

æjj fokk it.. ég nenni ekki að bíða í rúma 4 mánuði í viðbót...

allir eiga að svara:D ógó gaman sko:P

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 17:37:17 / elísabet

fyrsta bloggið síðastliðna rúma 5 mánuði.. hehe.. vúbbsí:p

hæhæ þið fáa en frábæra fólk sem kemur hingað svona öðru hverju.. ég biðst velvirðingar á leti minni að blogga hérna en ég var eiginlega bara búin að gleyma þessari síðu:^)

það er svosem ekki margt sem hefur á daga mína drifið sem ég get sagt ykkur frá en ég get þó montað mig af því að ég er að fara á Basshunter tónleikana í kvöld... HAHA.. kann alveg heilt EITT lag með þeim.. eða honum eða what ever.. allavega þá ætlar meirihlutinn af ds WYXUS!! að hittast heima hjá Hönnu núna um 7 leytið og borða pizzu ef ég skildi þau rétt og hlusta eins og maniacs á Basshunter til að geta sungið eitthvað smávegis með..

mamma mín var þó rétt í þessu að bjóða mér að koma fram og borða kjúkkling í Balti eða Bali eða eitthvað og aþþí ég er svo svöng þá ætla ég að skreppa og fá mér pínu kjúlla..

BRB                                                                                                                      

ég er komin! kjúllin var ágætur btw í sterkari kanntinum samt miðað við að krukkan sagði að þetta væri medium... en allavega..

ég fór í matarboð á föstudaginn minnir mig, ég, una, ásta og helena hittumst heima hjá unu og elduðum okkur mat og spjölluðum og flippuðum eitthvað með myndavélina hennar unu.. skrautleg útkoma þar á ferð.. ;) aallavega.. þetta var hið ágætasta matarboð.. langt síðan ég hitti stelpurnar og sonna..

svo tók helgin bara við.. vinna vinna vinna.. nýja krónubúðin var sko að opna og ég var að vinna þar.. var flutt þangað eftir að nóatúnið mitt ástkæra lokaði:cry: .. nýja krónubúðin er samt alveg ágæt sko.. hún er sko sjúklega stór.. og er sona eiginlega blanda af krónunni og nóatúni..(það má sko alveg aþþí það eru sömu eigendurinr á þessum 2 búðum) allavega.. ég er bara í bakarínu aðra hverja helgi og svo á kassa á mánudögum... oki.. bakaríið er alveg ágætt sko.. en halló, góðann daginn og gleðileg jól sko.. ég var ein útí  horni á búðinni, enginn annar starfsmaður nálægt mér og útvarpið var bilað.. ég var semsagt ein allan daginn báða dagana að baka brauð og kex og pizzur og allskonar hluti raulandi jólalög *andvarp*  og ekki nóg með það heldur er sími allstaðar í búðinni fyrir starfsmenn, einn á hverjum kassa(það eru sko 8 kassar), einn innná skrifstofu, einn inná kaffistofu, einn inní kjöti og ábyggilega inná lager.. en EKKI í bakaranum.. þannig ef ég vissi ekki eitthvað þá varð ég bara að gjöra svo vel að semja :S ekki nógu gott..        annars eru kassarnir líka hálfkjánalegir.. starfsfólkið raðar í einhverja draslpoka sem rifna við minnstu áreynslu.. frekar slappt sko og kjötborðið HAHA þeir eru í stóru glerbúri greyin.. innst í búðinni umkringdir hljóeinangruðu gleri HAHAHA.. soldi skondið sko.. svo eru við með stæsta grænmetisborð á íslandi held ég.. alveg hellingsstórt sko.. 

en nóg um vinnuna.. og bara nóg um blogg yfirhöfuð.. ég þarf að fara að gera mig reddí og koma mér til hönnu..

-OVER AND OUT-

ps. endilega allir sem lesa þetta allt já eða bara hluta.. endilega skrifa komment eða allavega skrifa hæ í gestabókina eða eitthvað;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 02:01:59 / elísabet

óhappadagur út í gegn

oki.. sko.. dagurinn sem var að líða var sannkallaður óhappadagur fyrir mig.. án gríns.. mér var bara ekki ætlað að lifa :s allavega ekki í dag.. þetta byrjaði allt saman í morgun þegar ég vaknaði of seint .. as usual.. ég er og svo fór ég beinustu leið í vinnuna og þar gekk bókstaflega allt á afturfótunum.. ég var næstum því búin að brjóta kjötborðið á fyrstu 10 mínútunum.. en sem betur fer brotnaði það ekki.. ég braut bara 2 krukkur sem voru ofaná því.. en addi sagði samt að ég væri fyrsta mannnekjan sem næði að gera þetta án þess að brjóta borðið ( ég semsagt skellti glerinu þegar ég var að loka því) ég þurfti að sópa og ryksuga og sona allt kryddið og glerbrotin *andvarp* þetta var þó ekki það eina sem skeði í vinnunni því á þessum 5 klst sem ég var að vinna tókst mér líka að rispa á mér hendurnar á hillunum og fá marbletti (einnig útaf hillunum) öskra inní miðribúð.. gera mjög asnalega stunu fyrir framan vinnufélaga mína sona svo eitthvað sé nefnt.. ég skellti mér svo í heimsókn til örnu (stóru systur minnar) og við fórum meðal annars í heimsókn til vinkonu hennar sem var að eignast litla stelpu núna 31. apríl.. og ég fékk að halda á henni:D hún var sko alveg sjitt fokk sæt.. alger rúsína.. bókstaflega sko.. krumpuð og sæt:P hehe.. ég og arna gerðum líka ýmsilegt fleira.. sumt sem er ekki við hæfi að segja hérna.. (ekkert klúrt þó) ég kom síðan heim og borðaði pizzu og fór svo út í bíltúr með önnu, kristínu og bróðir hennar.. skutluðum honum uppá hlemm og fórum bara að rúnta.. ég gerði mig eimmitt að fífli inní sjoppunni sem við fórum í.. 2.. ! fyrst labbaði ég á ruslatunnu fyrir utan. og það var bíll alveg uppvið mig eiginlega sem sá allt( fólkið í honum sko) og svo hittum við kristján vinnufélaga minn og vin hans (held það allavega) inni og þegar ég var að labba út... þá klessti ég á nammibarinn.. það verður náttla ekki mikið svalara en það.. ég kom svo ekki heim fyrr en sona um hálf 2 leytið sem er mjög seint miðað við foreldra mína sem senda mér vanalega sms ef ég er ekki komin heim á mínútunni 12 á miðnætti.. en þegar ég kom inn.. sá ég að þau höfðu bara farið í rúmið:p hihi ohh.. pælið í því... öll familían mín er að fara austur í hallormstað (hjá egilsstöðum) um helgina og ég verð EIN HEIMA! ohh. mér finnst það svoo gaman..:D það verður svo gaman hjá mér.. váááá´bara.. stuð stuð stuð! unnur er búin að gista hjá mér núna 2 nætur í röð:D gaman að því.. við skemmtum okkur alveg ágætlega.. fórum líka í hesthús með pabba hennar og stjúpsystir.. og það var hestur sem beit unni.. TVISVAR á sama astað.. haha.. nú er hún með narblett á handabakinu.. okii.. nenni ekki meir í bili.. klára akannski seinna bara.. adios amigos -- OVER AND OUT

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 11:00:41 / elísabet

svekkelsi á svekkelsi ofan

jæja.. klukkan er ekki nema korter í ellefu á laugardagsmorgni og ég er vakandi :@ og ekki nóg með það.. heldur er ég búin að fara í vinnuna, labba heim og hringja í allar vinkonur  mínar sem ég hitti sona dagsdaglega.. og það eru bara allir uppteknir.. oki.. ég hringdi reyndar ekkki í hönnu.. en það er bara aþþí ég veit að hún er í vinnunni.. þú kannski spyrð þig afhverju í ósköpunum ÉG sé vakandi og svarið við því er ósköp einfalt.. anna, vinkona mín sagði mér í gær að ég væri á morgunvakt í dag, hún var alveg pottþétt á því.. þannig ég vaknaði auðvitað til að geta mætt klukkan 10 en neinei... þá á ég ekki að mæta fyrr en klukkan 17 :@ ohhh.. díses kræst.. núna hef ég bókstaflega ekkert að gera..

pabbi er búin að taka rauða bílinn eitthvað í sundur.. þannig við getum ekki farið í bíltúr og leyft mér að keyra:( þannig ég verð bara að vera hérna heima og láta mér leiðast.. afhverju eru ekki allir vakandi og á msn eða eitthvað.. afhverju er enginn þar? ég bara spyr..

ég ætti kannski að reyna að klára að taka til í herberginu mínu.. það er voða lítið pláss þegar rúmið mitt er óumbúið og svo er líka bakpokinnn minn og fleira hérna sem þyrfti eiginlega að fara niðrí geymslu..

plan dagsins: fara í bankann og fá pening, heimsækja unni í vinnuna, fara í vinnuna mína..

þetta er án gríns það eina sem ég hef til að gera í dag.. en það er ekkert grín að fara í bankann á laugardegi! ... ég þarf að fara allaleið í smáralindina :o bömmer

ég hef engu að síður einar gleðifréttir:D um næstu helgi.. þá verð ég að öllum líkindum ein heima:D fjölskyldan mín er að fara austur á egilsstaði til að fara í fermingu.. en ég nenni ekki að fara með.. freydís og hrólfur voru reyndar búin að spyrja hvort ég vildi koma með þeim til akureyrar þessa helgi.. en ég held samt að þau vilji heldur fara ein.. þannig ég ætla ekkert að vera að troða mér uppá þau.. ég get allteins verið ein heima... það er mjög skemmtilegt meira að segja.. ég fæ að ákveða hvað og hvenær ég borða og hvenar ég fer að sofa og hvenar ég vakna.. ohh.. díses.. lúxuslíf :P hehe.

jæja.. ef einhver les þetta og langar að koma að gera eitthvað í dag.. þá endilega bara bjalla í mig:D hehe.. veit samt alveg að hanna er svona eiginlega eina manneskjan sem les þetta hehe.. og hún er í vinnunni til hálf sjö og þá verð ég komin i vinnuna.. :( þannig þetta virkar kannski ekkert alltof vel.. þetta plan.. enn. allavega... 

ég ætla að taka smá til í herberginu mínu.. allavega búa um rúmið og fara með óhreinu fötin:p hehe. þannig bara .. later..

_________________________________________________________________

mér þykir leiðinlegt að segja frá því en "plan dagsins" er farið útum þúfur:( ég nennti ekki í bankann.. og gleymdi að ég ætlaði til unnar.. og nú er það orðið of seint.. sorry unnur:( bara seinna.. :D ég byrjaði samt á því að taka til í herberginu mínu:D en hénna.. árangurinn er ekkert til að hrópa húrra fyrir.. hehe.. úbbsí..það er svona eiginlega verra núna :^) en allavega.. ég nenni ekki að skrifa meira.. en ég ætla þó að koma með eina pælingarspurningu.. ég hef nebbla heyrt fólk segja báða hlutina

hvort er það "líkur sækir líkann heim" eða "andstæður dragast saman" hmmm.. bara smá pæling

OVER AND OUT 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 00:57:11 / elísabet

kl

hæhæ..

þið eigið aldrei eftir að trúa þessu.. ég fékk sona löngun.. alveg bara virkilega sterka löngun til að blogga.. en svo þegar ég ætlaði að byrja.. þá bara fór hún:S 

ég get samt sagt ykkur að ég er búin að breyta í herberginu mínu:D það er alveg allt öðruvísi núna.. ég hugsaði samt ekki alveg breytinguna til enda þegar hún átti sér stað og núna er ég með hillu sem passar ekki aftur á vegginn og stamp sem er úti á miðju gólf:P úbbsí ... svo náði sjónvarpssnúran heldur ekki í réttu innstunguna:o  en pabbi átti lengri snúru einhverstaðar frammi.. svo það reddaðist alveg:D

æji. ég nenni þessu ekki.. ég er bara að spá í að fara.. .. það er hvort eð er enginn sem les þetta. hehe.. :P þarf að færi hilluna sem passar ekki á vegginn sinn og postulínsdúkkurnar úr rúminu svo ég geti farið að lúlla.. svo þarf ég líka að vakna á morgun og fara að vinna.. klokken 11 þá á ég að mæta..

en allavega.. OVER AND OUT


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 01:44:36 / elísabet

stutt bara

ollræt píbúls.. ekkert voða marg að ske þessa stundina.. er bara heima hjá mér.. að horfa á tv og sona.. enginn inná mns. bömmer! en pælið í því á morgun.. eða á eftir.. gæti verið að ég fari inní skólann minn í síðasta skipti.. ég er nebbla að spá í að skipta um skóla:P gaman gaman.. en samt bara kannski.. er að spá í að fara úr Kvennó yfir í MH.. en kannski kemst ég ekki inn.. þannig að..

allavega.. á morgun er einkunnaafhendingin í skólanum:D mér hlakkar alveg sona lúmst til sko.. en samt ekki:s æji ég veit ekki...

nenni ekki að skrifa meira.. ætla bara að horfa á tv.. OVER AND OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 00:38:17 / elísabet

kæra dagbók

olllrætí.. byrja bara á að segja stuttlega frá gærkveldinu.. ég fór semsagt að horfa á eurovision með vinnufélegum mínum og hönnu og nokkrum öðrum gestum.. þetta var eitthvað skrítnasta eurovisionpartí sem ég hef og mun nokkurtímann fara í.. sjónvarpið virkaði ekki.. þannig við hlustuðum á eurovision og svo var fólk flest vel hresst.. hehe.. það var allavega ógó gaman og var fólk misagressift á hitt kynið.. sumir meira en aðrir..

í dag.. fór ég svo í vinnuna.. og ég var í kælinum og sona skemmtilegheit.... fór síðan í keilu með hrólfi og freydísi.. og fórum í 2 leiki í pool.. ég og freydís unnum hrólf einu sinni :D gaman gaman

oki.. þá er allt komið.. í virkilega stórum dráttum.. nenni ekki að fara útí smáatriði núna.. kannski bara seinna.. ef ég nenni.. ! allavega.. ég kveð bara.. OVER AND OUT


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 10:06:40 / elísabet

mér leiðist

oki oki.. ég veit alveg að það er stutt síðan ég bloggaði síðast.. en ég bara hef EKKERT að gera:( komin í langþráð sumarfrí úr skólanum:D en mér til mikillar óánægju þá er ég í sumarfríi frá vinnunni líka:( verslunarstjórinn í búðinni minni ákvað nebbla að skreppa í utanlandsferð og verður alveg í sona hálfan mánuð í viðbót eða eitthvað og hann var ekkert búin að úthluta mér vöktur:@ hann var bara búinn að segja að ég fengi vinnu.. hvaða rugl er það? og aðstoðarverslunarstjórinn veit bara ekkert í sinn haus í þessu máli.. ég hef því enga aukalega vinnu við mínar venjulegu vaktir.. þ.e. vaktirnar sem ég hafði með skólanum sem eru btw ekki margar

og hvað er málið með að vakna snemma? ég vaknaði bara sjálf belive it or not.. klukkan 07:48 what is the málið with that? ég bara spyr(A) þannig að núna. klukkan 9:54 þá er ég búin að horfa á 6 til 7 (þáttinn) og dr. phil og svo hlusta á fullt af tónlist og láta mér leiðast.. er meira segja farin að pæla í að taka til í herberginu mínu:S þetta er orðið það slæmt

ég verð eiginlega bara að kvarta aðeins meira yfir Eurovision.. þið getið bara sleppt þessum búti ef þið eruð búin að heyra nóg kvart um það.. en oki.. hvað í ósköpunum hefði Armenía umfram okkar lag? þetta var BARA ömurlegt.. og líka litháen.. oki.. það var alveg fyndið.. eða þessi feiti sköllótti sem trippaði á sviðinu.. það var alveg hægt að hlæja ég er ekki að segja að þetta hafi verið ömurlegt atriði í alla staði. og takið eftir því að ég segi atriði.. því það voru ekki miklir sönghæfileikar sem fenguð að fljúga um sviðið á meðan á því stóð.. textinn var líka frekar takmarkaður.. "we are the winners of Eurovision" og "vote for the winners" þetta er eiginlega allt sem er sagt.. en Silvía Night var samt klárlega betri.. þó hún hafi reyndar sungið þetta betur áður.. þá var sviðið flott.. hún var flott.. og ég meina.. ef fólk sér ekki húmorinn í þessu lagi þá er fólk lúðar.. Eurovision er líka orðin svona klíkuslagur ef þið spáið í því.. norðurlöndin kjósa hvert annað og hin löndin kjósa hvort annað. semsagt.. nágrannalönd kjósa hvort annað.. það er ekkert sanngjarnt.. ég meina.. við t.d. erum einhverstaðar lengst útí sjó.. það er enginn beint nálægt okkur...

ég ætlar því að leggja til að við höfum þögul mætmæli .. ég legg til að ENGINN kjósi á morgun í símakostninu Eurovisionkeppninnar.. og svo ein skemmtileg staðreynd.. við erum að borga fjórða hæsta gjaldið í símakostningunni.. ég meina.. við borgum 99,90 krónur.. Danmörk t.d. tek hana bara sem dæmi þar sem íslendingar miða sig svo oft við hana.. borga bara 3 krónur... oki. annaðhvort erum við alltaf að miða okkur við vitlaust land.. eða þá þetta eru bara MJÖG ósanngjarnt

ég ætla að segja þetta gott í bili.. OVER AND OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 01:23:39 / elísabet

ný færsla

ollræt.. klukkan er rétt rúmlega 2 samkvæmt tölvunni minni.. en hún virðist alltaf vera eitthvað að flýta sér.. ég er alltaf að laga hana en hún virðist bara skippa einum klst. eða eitthvað .. allaveg þá er klukkan bara rétt rúmlega 1

ég er sona eiginlega bara nýkomin heim úr afmæliseurovisionpartíi.. OMF.. mig langaði að fara að grenja.. að hugsa sér.. Armenía komst áfram en ekki Ísland.. það var púað á Silvíu nótt.. OMF dónafólk.. fokking monglits:@  en afmælið útaf fyrir sig var ágætt... endaði samt í hálfgerðu rugli.. fórum í SPK.. hehe.. soldið 7unda bekkjarlegt.. en oki:p í þessum stórskemmtilega leik fengu ýmis leyndarmál að fljúga um loftið... þó sum þeirra höfðu haldið kyrru heima fyrir(þ.e. í huga eigandans):D 

Inga, afmælisbarnið bauð sko öllum í WYXUS!! heim til sín og við fengum sko hamborgara a la Ævar (sem er eimmitt pabbi hennar) við dönsuðum eins og fávitar út um allt hús og sungum ýmist bítlana, queens, eurovisionlög eða "noregslög" (geisladiskarnir sem við hlustuðum á í noregi)

en nóg um það.. ég er að fara að andlitsmála krakka á morgun á milli 17 og 19 fyrir XD eða sjálfstæðisflokkinn eins og hann heitir víst.. geri það með hönnu og katrínu held ég og kannski ingu... þetta er samt ekki allt komið á hreint.:S soldið seinar í þessu kannski :p en who cares.. :p

ég hef voða lítið að segja ykkur meira í kvöld..

jú annars.. ég fór á ball i gær.. það var mjög gaman sko:D lokaballið hjá kvennó þetta árið.. Bermúda spilaði og svo var víst líka dj herbergi en það fór eitthvað framhjá mér hehe.. úbbsí. :P Anna kakólína kom með mér á ballið og dansaði með mér eins og mongó.. gaman að því.. inga var þarna líka :D hún var samt ekki alltaf með okkur.. hún dansaði fullt með bekknum sínum líka.. en já.. uss.. öryggisverðirnir voru bara í fantastuði.. brandararnir ullu bara útúr þeim.. ussussuss.. aldrei á ævi minni hef ég heyrt annaðeins:p hehe.. öryggisvörðurinn sem leitaði í veskinu  mínu var bara eitthvað.. " er bara verið að safna" aþþí ég var sko með 3 gemsa í veskinu mínu.. belive it or not.. hehe. í þessu litla veski... og svo sagði hinn öryggisvörðurinn sem var að skoða veski (bara ekki mitt) " má ég fá númerin hjá þér" honum fannst þetta alveg agalega fyndinn djókur.. æjj æjj.. sona hefur fólk missteiktan húmor.. en það er bara ekkert að gera í því

ég ætla lika aðeins að monta mig sko.. ég fékk sko 3 kossa á munninn í ammælinu áðan:p 1 frá unnustunni  minn og 2 frá kærustunni minni:P og svo voru þeir alveg nokkrir sem fengu að flakka á kinnina:p hehe.. og svo purraði ég líka ingu á magann. :p skondið

en oki.. nú er komið nóg.. OVER AND OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 00:03:21 / elísabet

ARG! FOKKING ÓSANNGJARNAST Í HEIMI

ojjbara.. nú langar mig mest af öllu að drekkja mér í sorg og grenja úr mér augun.. ég er búin að eyða klukkutíma í að skrifa geggjað langt blogg. og svo savaðist það ekki.. OJJBARASTA!!!!!

þetta er náttlæa bara ósanngjarnast í heimi.. ég lagði mig alla framm í þetta blogg.. sagði frá helginni minni og komandi viku.. sem verður btw geggjað skemmtileg.. nenni samt ekki að skrifa allt aftur.. þannig  tú bad fyrir ykkur.. fáið ekki að vita það

ég er hætt í bili .. OVER AND OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 15:18:01 / elísabet

sitt lítið af hverju

ég skil ekkert í þessu.. ég nenni aldrei að blogga.. :S gleymi líka alltaf að ég eigi þessa síðu.. ekki alveg nógu gott.. ég blogga samt alveg stundum.. en það er bara á annari síðu.. www.blog.central.is/wyxus

ég er geggjað svöng.. :( samt borðaði ég franskar í vinnunni áðan.. ég borðaði samt ekkert mikið af þeim.. aþþí ég var síðan alltí einu ekkert svöng í franskar:O

ég var í sturtu áðan og ákvað mér til skemmtunar að máta kjólinn minn í sona púff innanundir.. geggjað svalt...:p er eimmitt í því núna.. bara sona ef einhver var að spá..

hanna mín er að fara að koma á eftir.. við erum að fara að reyna að klára þennan blessaða fyrirlestur okkar... hann á samt að vera löngutilbúinn..ábyggilega mánuður síðan eða eitthvað.. :s en hann verður samt geggjað svalur... bíðiði bara...

haha.. systir mín er að horfa á sjónvarpið frammi.. og ég heyri tónlistina og hún er að horfa á Skólalíf nema bara á ensku..  við eigum það samt á spólu :s skil ekki hvernig hún nennir að horfa á þetta.. haha

hanna er ábyggilega lögð af stað til mín núna fyrir soldið löngu.. skemmtilegt nokk..

OMF ég er svo ógeðslega svöng að ég er að DEYJA!

ég var að vinna áðan.. átti bara að vera frá 9-12 en var alveg til að verða 14:O  ég og lára vorum saman í kælinum og ostunum og eitthvað... og svo leysti ég ingunni af þegar hún fór í mat... og var þá á póstinum í sona klst eða svo...

ég er að spá í að hætta bara núna.. það les þetta hvort eð er enginn.. voða lítill tilgangur í að skrifa þetta.. hehe... ekki það að mér finnist eitthvað skrítið að fólk skoði þessa síðu ekki.. hún er frekar óspennandi og ég nenni eiginlega aldrei að blogga.. hehe. 

OMF.. var að muna að ég er að fara í frönskupróf á morgun:S ég er sko ekkert búin að læra:S OMF

er farin að læra þangað til hanna kemur.. OVER AND OUT


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 20:21:12 / elísabet

æ

jæja.. ég held að ég geti alveg sagt með sanni að það er vel langt síðan ég hef bloggað hérna síðast.. ég get kannski ekki alveg kennt annríki um hérna þar sem það á nú ekki við í öllum tilvikum.. en allavega.. þá eru prófin að fara að byrja hjá mér eftir 3 daga þ.e.a.s. á 3 degi talið frá núna þá byrja þau.... 1 heill kennsludagur eftir og svo einn frídagur.. pælið í því.. bráðum á ég bara 3 ár eftir í skóla:O þetta er fljótt að líða..

ég hef samt eiginlega ekkert að segja.. þannig ég hef þetta bara stutt í þetta skiptið.. bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2